04 nóvember 2012

Hugurinn fer á flakk

Er núna á fullu að skoða hugmyndir fyrir afmælið hans Bigga, hann vill hafa Ninjago þema þannig að við ætlum að reyna að föndra eitthvað saman. Er búin að vera á fullu að skoða á netinu og fullt af hugmyndum þar sem hægt væri að framkvæma. Læt nokkrar hugmyndir fylgja
Fallegt veisluborð

Sniðug hugmynd

Ninjago glös

Töff afmæliskaka

Sniðugar blöðrur


Auðveld og sniðug hugmynd 


29 október 2012

Ælupest

Við Birgir erum bara heima í dag, hann byrjaði að æla í nótt og svo aftur í morgun, hefur sofið nánast í allan dag, er mikið slappur litla skinnið. Leiðinlegt fyrir hann að eyða vetrarfríinu sínu í veikindi en svona er þetta bara.

Við erum allavega búin að hafa það kósý, hann kúrir bara hjá mér og sefur.

Ég vona svo innilega að ég sleppi við þessa ælupest, er ekki alveg tilbúin í hana núna.

En það er víst kominn tími á meira kúr með gullinu mínu.

27 október 2012

Stefnan

Púff það eru farin 3,5 kg á 3 vikum með breyttu mataræði. Ætli ég nái 4kg á 4 vikum ? En ég stefni á 7kg fyrir jól, það væri bara æðislegt.

22 október 2012

Næturvakt

Úff þá er það næturvakt í kvöld og aftur à morgun, væri alveg til í að vera bara heima en svona er þetta... Verð mjög fegin á miðvikudaginn kl 8:00 þá er ég komin í smá frí ;)

21 október 2012

Eitt gott fyrir svefninn

Gamalt en gott

Ár og aldir

Það má segja það að ég hafi gleymt blogg síðunni minni.

En síðan ég bloggaði seinast þá er margt búið að gerast í mínu lífi, ég gæti endalaust talið upp en ég geri það kannski í næstu færslum.

Reyni bara að koma mér af stað aftur og sjá hvort þetta sé eitthvað að ganga ;)

09 júní 2008

Hvað skal gera

úff... ég er bara í vinnunni og læt mér leiðast... frekar líti að gera... mætti 2 tímum fyrr í dag til að "læra" á sumt hérna... en það er bara fínt... meira útborgað :op muhahahaha nei djók...
En já ég fór í saumaklúbbinn um heilgina... bara stuð, en ég komast samt að því að ég er enginn "djammari" var ekki alveg að fíla mig þarna niðrí bæ enda stoppaði ég stutt...

Svo var sunnudagurinn bara notalegur... kúrt uppí sófa og rúmi og horft á þætti sem ég var búin að downloda...

En ég er samt frekar fúl núna... ég var að horfa á draum minn fjúka í burtu :o(
Eða allavega verður honum seinkað um ár til að byrja með...

En ég er að reyna að plana hvernig ég eigi að nota frímiðann minn... er að pæla í því að fara IS-DK-UK-DK-IS EÐA IS-DK-UK-IS... en það kemur bara í ljós...

En ég ætla að fara að halda áfram að vinna eða "vinna" hehe... nei nei ég finn mér alltaf eitthvað að gera ;o)

07 júní 2008

leti

úff hvað ég er búin að vera löt við að blogga... en ég er allavega búin í skólanum og byrjuð að vinna hjá Icelandair Cargo, þetta er mitt annað sumar þar, sem er reyndar bara fínt... búið að vera frekar rólegt en verður brjálað að gera um miðjan þennan mánuð, akkurat þegar ég verð ein í afgreiðslunni :o/
En það bjargast allt....

Amma Alda var lögð inn aftur, þannig að við bíðum bara og vonum að þetta sé allt í lagi, hún er hressari núna sem er bara gott...

Birgir minn fer í sumarfrí í enda þessa mánaðar og verður Sandra að passa hann fyrir mig á meðan ég verð í vinnunni...

Ég fór til læknis á manudaginn, það var ekki allt eins og það átti að vera þannig að ég þurfti að fara á lyf, og vá hvað þau fara illa í mig, er ekkert smá slöpp og þreytt... en vonandi virka þau... nenni ekki að fara á einhver önnur lyf... fæ að vita útúr niðurstöðunum eftir 2-5 vikur núna... þannig að ég vona að lyfin virki og allt lagist hjá mér...

En í dag nenni ég ekki neinu, leiðinlegt veður og ég peninga lítil þannig að það er ekki margt sem hægt er að gera... langar samt svo í bíó með guttann, honum finnst það svo gaman... en ég sé til...

En þið megið alveg vera í bandi og kíkja í heimsókn, ég er alltaf bara hérna heima á kvöldin og læt mér leiðast...

Ég ætla samt að reyna að fara á samkomu í kvöld og svo er reyndar saumaklúbbur hjá vinahópnum en ég efast um að ég komist... vil ekki að mamma sé alltaf að passa og Sandra getur ekki passað fyrir mig því hún er úti á spáni minnir mig... en þá verð ég bara heima og hef það notalegt ekki að það sé eitthvað slæmt hehe

11 apríl 2008

söknuður

Ég vissi ekki að það væri hægt að finna fyrir svona miklum söknuði, lilti kúturinn minn er núna útí DK með mömmu hjá Míu systir og Hauki... það er víst svaka stuð á þeim sem er bara æðislegt...
En ég sakna hans svo mikið, er svo háð honum og vön því að hafa hann alltaf hjá mér enda hefur hann verið hjá alla daga síðan hann fæddist fyrir utan nokkra daga sem eru mjög fáir...
Ég get ekki beðið eftir að fá hann heim og knúsa hann og kyssa...

En út í aðra sálma, þá var ég í klippingu og litun í dag hjá henni Lilju minni, ég er komin með frekar stutt hár, dökkt með appelsínugulum lokkum, mjög flott, en ég þarf aðeins að venjast því...
Sem ég þarf hvort eð er að gera í hvert einasta skipti sem ég fæ mikla breytingu á hárinu mínu, er samt mjög ánægð og er að fíla mig í tætlur :op

Ég fór út að borða núna í hádeginu með Öddu, Hannesi og Bjarndísi, vá hvað það var gaman, þau eru svo yndisleg, ég á eftir að sakna þeirra þegar skólinn er búinn, og auðvitað flesst allra hér í skólanum...

En kæru vinir, verið endilega í bandi, væri gaman að hitta ykkur á meðan ég get farið út á kvöldin fyrst ég er barnlaus núna í nokkra daga í viðbót... get samt ekki beðið eftir gullinu mínu.

06 apríl 2008

heilahristingur

Er búin að vera heima með guttann síðan á fimmtudag, hann nefnilega fékk heilahristing og svo hita og hósta, getið lesið betur um þetta á síðunni hans...
En ég er bara alltaf a reyna að læra og læra, gengur ágætlega, er bara rúmur mánuður í pófin þannig að þessi mánuður verður bara bækur og ekkert annað...
En ég get ekki beðið eftir því að útskirfast og fara að vinna og svo í HÍ... úff það verður stuð...
Er búin að sækja um og er bara að bíða :op

En það er ekkert merkilegt að frétta af okkur, ef það er eitthvað þá er það allt inná síðunni hans Bigga míns... er mikluduglegri með hans síðu en þessa...

En ég vildi bara láta vita að ég væri enn á lífi ;o)